25.07.26 - 15:16
Brynjar Ingi Erluson
Frændi Haaland til Tékklands (Staðfest)

Mynd: Sparta Prag

Mynd: Sparta Prag
Norski sóknarmaðurinn Jonatan Braut Brunes er mættur til tékkneska stórliðsins Spörtu Prag á tveggja ára samningi frá Rakow í Póllandi.
Venjulega væri ekki sagt frá félagaskiptum sem þessum, þótt leikmaðurinn hafi vissulega leikið með fjórum Íslendingum á ferlinum.
Brunes er 25 ára gamall og lék með Ara Leifssyni og Loga Tómassyni hjá Strömsgodset, Jóni Degi Þorsteinssyni hjá Leuven og Bjarna Mark Antonssyni hjá Start. Það er þó ekki ástæðan fyrir þessari umfjöllun.
Brunes er nefnilega frændi norsku stórstjörnunnar Erling Braut Haaland. Fótboltahæfileikarnir virðast liggja í ættinni en annar frændi þeirra, Albert Braut Tjåland, komst í fréttirnar fyrir nokkrum árum þegar hann raðaði inn mörkum í yngri flokkum. Emma, systir Jonatans, leikur síðan með Hafrúnu Rakeli Halldórsdóttur hjá Bröndby í Danmörku.
Frændurnir þrír léku allir með Bryne á sínum yngri árum. Hvorki Jonatan né Albert hafa þó náð sömu hæðum og Haaland, sem er einn fremsti sóknarmaður heims.
Brunes er engu að síður að færast upp metorðastigann. Hann er genginn til liðs við tékkneska stórliðið Spörtu Prag eftir að hafa raðað inn mörkum fyrir Rakow í Póllandi. Alls skoraði hann 40 mörk á tveimur tímabilum þar í landi.
Það verður forvitnilegt að fylgjast með Brunes í Tékklandi, ekki síst í Evrópukeppninni. Sparta Prag mætir Lyon í þriðju umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í næsta mánuði.

?? SIGNING | Jonatan Braut Brunes is our new attacking addition. The Norwegian striker has signed a long-term contract with the club ????
— AC Sparta Prague (@ACSparta_EN) July 25, 2026
Welcome, Jonatan! ???????? pic.twitter.com/fjOHPviMDU