Fotbolti.net
25.07.26 - 15:51
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeildin: Langþráður sigur ÍR kom í veg fyrir að Fylkir færi á toppinn

Emil Nói skoraði fyrra mark ÍR-inga

Emil Nói skoraði fyrra mark ÍR-inga

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Lengjudeildin
ÍR 2 - 0 Fylkir
1-0 Emil Nói Sigurhjartarson ('30 )
2-0 Orri Bjarkason ('49 )
Lestu um leikinn
ÍR-ingar unnu langþráðan 2-0 sigur á Fylki í 15. umferð Lengjudeildar karla á Þarfaþingsvellinum í Breiðholti í dag.

Fylkismenn höfðu unnið þrjá síðustu deildarleiki sína en sátu eftir með sárt ennið eftir tapið gegn Aftureldingu í undanúrslitum Mjólkurbikarsins á dögunum. Þar réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni eftir framlengdan leik.

ÍR hafði á hinn bóginn ekki unnið deildarleik síðan 17. júní. Sú langa bið tók enda í dag.

Fylkir var meira með boltann í fyrri hálfleik en náði ekki að gera sér mat úr því. Þess í stað tóku ÍR-ingar forystuna eftir að gestunum mistókst að hreinsa frá marki. Hákon Dagur Matthíasson tók boltann niður á bringuna og lagði hann fyrir Emil Nóa Sigurhjartarson, sem stýrði honum í netið rétt utan vítateigs.

Orri Bjarkason tvöfaldaði forystuna skömmu eftir hlé með laglegu einstaklingsframtaki. Hann keyrði að vörn Fylkis, sem hörfaði undan, þaut fram hjá Aroni Snæ Guðbjörnssyni og renndi boltanum fram hjá Ólafi Kristófer Helgasyni í markinu.

Fylkismönnum tókst ekki að finna leiðina aftur inn í leikinn og öruggur 2-0 sigur ÍR varð niðurstaðan.

ÍR er komið upp í níunda sæti með 16 stig. Fylkir er áfram í þriðja sæti með 30 stig og missti þar með af tækifærinu til að komast á topp deildarinnar.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding14+2231
2Þróttur R.15+1730
3Fylkir15+1030
4HK16+928
5Njarðvík15+223
6Grótta14+122
7Vestri15-521
8Leiknir R.15-419
9ÍR16-916
10Grindavík15-514
11Völsungur15-1511
12Ægir15-238
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.