03.07.17 - 19:24
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Calhanoglu til AC Milan (Staðfest)

Mynd: Twitter

Mynd: Twitter
AC Milan hefur keypt Hakan Calhanoglu frá Bayer Leverkusen í Þýskalandi fyrir 25 milljónir evra.
Hann er sjötti leikmaðurinn sem Milan fær til sín í sumar.

Hann mætti til Mílanó í gær og sagði við komuna á flugvellinum að hann væri hann væri mjög glaður með að vera mættur.
Calhanoglu gekkst svo undir læknisskoðun í dag og skrifaði í kjölfarið undir fjögurra ára samning við þetta gamla stórveldi.
Þessi 23 ára leikmaður hefur ekkert spilað síðan í byrjun febrúar en FIFA setti hann í bann fyrir samningsbrot sem átti sér stað 2011.
AC Milan er nú í eigu Kínverja sem eru tilbúnir að spreða. Þeir hafa eins og áður segir keypt sex leikmenn í sumar fyrir 130 milljónir evra. Ásamt Calhanoglu hefur félagið fengið Mateo Mussachio, Franck Kessie, Ricardo Rodriguez, Andre Silva og Fabio Borini til sín.