Fotbolti.net
03.07.17 - 20:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Ítalska deildin

Gonalons til Roma (Staðfest)

Gonalons til Roma (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Roma hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Maxime Gonalons fyrir 5 milljónir evra. Hann kemur til Roma frá Lyon í Frakklandi.

Gonalons, sem er 28 ára gamall, er búinn að skrifa undir samning til fjögurra ára við Roma.
Hann spilaði með unglingaliðum Lyon og hefur allan sinn feril spilað með franska félaginu. Nú færir hann sig um set.

„Ég get ekki beðið eftir þessu nýja ævintýri,\" sagði Gonalons eftir að hafa skrifað undir samninginn.

Roma hefur verið með veskið á lofti í sumar. Það eru nokkrir leikmenn farnir, þar á meðal Mohamed Salah til Liverpool, en í staðinn hafa Gonalons, Rick Karsdorp, Hector Moreno og Lorenzo Pellegrini gengið til liðs við félagið.

OFFICIAL 📋 Maxime Gonalons is an #ASRoma player!

➡️ https://t.co/gPyPmGn2hV pic.twitter.com/ocKcRTAsZb

— AS Roma English (@ASRomaEN) July 3, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.