03.07.17 - 11:00
Magnús Már Einarsson
John Terry til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
John Terry hefur samið við Aston Villa en Dr. Tony Xia eigandi félagsins staðfesti þetta á Twitter í dag.
Terry hefur leikið allan sinn feril með Chelsea. Samningur hans hjá Chelsea rann út á föstudag og því kemur hann frítt til Aston Villa.
Birmingham vildi líka semja við Terry en hann ákvað að fara frekar til nágrannanna í Aston Villa.
Hinn 36 ára gamli Terry spilaði 717 leiki hjá Chelsea og varð fimm sinnum enskur meistari.

Aston Villa endaði í 13. sæti í Championship deildinni á síðasta tímabili en með liðinu leikur íslenski landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason.
👏🏻👏🏻👏🏻📞Welcome JT to Birmingham city...Aston Villa🌈!#UTV! @AVFCOfficial Announcement shortly!
— Dr. Tony Xia (@Dr_TonyXia) July 3, 2017