03.07.17 - 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Maksimovic keyptur til Valencia (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Valencia ætlar að gera betur í spænsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Félagið hefur fest kaup á Nemanja Maksimovic.
Maksimovic leikur sem miðjumaður og á landsleiki fyrir U-21 árs lið Serbíu. Hann kemur til Valencia frá Astana í Kasakstan.
Hann hefur skrifað undir fimm ára samning við Valencia.

Valencia hefur styrkt sitt lið hingað til með þremur leikmönnum. Auk Maksimovic hafa Simone Zaza og Fabian Orellana verið keyptir, en þeir voru í láni hjá félaginu á síðustu leiktíð.
Auk þess að bæta við sig nýjum leikmönnum er félagið komið með nýjan þjálfara. Marcelinho er tekinn við stjórnartaumunum og hann stefnir á að gera betur en síðustu stjórar liðsins.