Fotbolti.net
03.07.17 - 19:06
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Michael Keane til Everton (Staðfest)

Michael Keane til Everton (Staðfest)
Canon

Mynd: Twitter

Everton hefur keypt varnarmanninn Michael Keane frá Burnley á upphæð sem gæti farið upp í 30 milljónir punda.

Keane hefur krotað undir fimm ára samning við Everton.
Keane var frábær í vörn Burnley á síðasta tímabili, en hann var í kjölfarið valinn í enska landsliðshópinn.

„Ég er ótrúlega ánægður með að verða orðinn leikmaður Everton,\" sagði Keane við undirskrift. „Ég get ekki beðið eftir því að mæta á æfingu á morgun og hitta strákana.\"

„Ég horfði mikið á Everton á síðasta tímabili og ég tel mig henta vel fyrir það hvernig liðið vill spila. Þetta er góður staður fyrir mig.\"

Everton hefur verið á fullu á leikmannamarkaðinum í sumar en markvörðurinn Jordan Pickford kom frá Sunderland á 25 milljónir punda á dögunum auk þess sem miðjumaðurinn Davy Klaassen kom frá Ajax á 24 milljónir punda. Þá kom Sandro Ramirez frá Malaga fyrr í dag, aldeilis nóg að gera á skrifstofunni hjá Everton!

Fleiri leikmenn hafa verið orðaðir við félagið að undanförnu en þar á meðal eru Gylfi Þór Sigurðsson, Olivier Giroud og Wayne Rooney.

🔵 | We’ve signed Michael Keane on a five-year deal for a fee which could rise to a Club-record £30m

👉🏻 https://t.co/qifa0F6gCU pic.twitter.com/jkbyIhz145

— Everton (@Everton) July 3, 2017


👀 | It's been a busy day...🔵🔵🔵 pic.twitter.com/B1Z3yVUscR

— Everton (@Everton) July 3, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.