Fotbolti.net
03.07.17 - 22:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Mónakó kaupir Kongolo (Staðfest) - Getur leyst Mendy af

Kongolo er farinn frá Hollandsmeisturum Fayenoord.

Kongolo er farinn frá Hollandsmeisturum Fayenoord.

Canon

Mynd: Getty Images

Það hefur verið nóg að gera á skrifstofunni hjá Mónakó sumar. Félagið hefur staðið í ströngu við að halda leikmönnum áfram í sínum röðum og það hefur gengið ágætlega. En auk þess hefur Mónakó verið að gera góða hluti í leikmannakaupum.

Mónakó staðfesti fyrr í dag kaup á hollenska varnarmanninum Terrence Kongolo.
Kongolo hefur lengi verið orðaður við Mónakó og nú hafa kaupin á honum verið staðfest.

Kongolo varð hollenskur meistari með Fayenoord á síðasta tímabili, en nú gengur hann í raðir Frakklandsmeistaranna.

Talið er að þessi kaup opni dyrnar fyrir Benjamin Mendy að róa á önnur mið. Mendy hefur verið sterklega orðaður við lærisveina Pep Guardiola hjá Manchester City í sumar.

Kongolo getur spilað sem vinstri bakvörður og sem miðvörður. Mónakó borgar fyrir hann 15 milljónir evra.

🖊 L’AS Monaco est heureux d’annoncer la signature de @KongoloTerence jusqu’en 2022 ! #WelcomeToMonaco

➡️ https://t.co/UxmLo7UBZ6 pic.twitter.com/YureKEAYlj

— AS Monaco🏆🇫🇷 (@AS_Monaco) July 3, 2017

Benjamin Mendy

Benjamin Mendy

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.