Fotbolti.net
03.07.17 - 15:18
Magnús Már Einarsson

Sandro Ramirez til Everton (Staðfest)

Sandro skoraði 14 mörk í La Liga á síðasta tímabili.

Sandro skoraði 14 mörk í La Liga á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Everton

Everton hefur keypt framherjann Sandro Ramirez frá Malaga á 5,2 milljónir punda en það var riftunarákvæðið í samningi hans við spænska félagið.

Hinn 21 árs gamli Sandro skrifaði undir fjögurra ára samning við Everton.
„Ég er mjög ánægður. Þetta er stórt skref á ferli mínum,\" sagði Sandro eftir undirskrift.

Everton hefur verið á fullu á leikmannamarkaðinum í sumar en markvörðurinn Jordan Pickford kom frá Sunderland á 25 milljónir punda á dögunum auk þess sem miðjumaðurinn Davy Klaassen kom frá Ajax á 24 milljónir punda.

Fleiri leikmenn hafa verið orðaðir við félagið að undanförnu en þar á meðal eru Gylfi Þór Sigurðsson, Olivier Giroud og Wayne Rooney.

👀 | It's that time again... pic.twitter.com/DlrGSc2MJW

— Everton (@Everton) July 3, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.