03.07.17 - 18:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Zhang Yuning í West Brom (Staðfest)
Lánaður strax til Werder Bremen

Yuning er kínverskur landsliðsmaður.

Mynd: Getty Images

Yuning er kínverskur landsliðsmaður.

Mynd: Getty Images
West Brom hefur gengið frá kaupum á kínverska sóknarmanninum Zhang Yuning, en hann kemur til liðsins frá Vitesse Arnheim fyrir upphæð sem er ekki gefin upp á þessum tímapunkti.
Hann samþykkti þriggja ára samningstilboð frá WBA, en hann verður lánaður strax til þýska liðsins Werder Bremen.
Hann samþykkti þriggja ára samningstilboð frá WBA, en hann verður lánaður strax til þýska liðsins Werder Bremen.
Claudio Pizarro fær ekki nýjan samning hjá Werder og Yuning kemur til með að fylla í hans skarð að einhverju leyti. Með Werder leikur Aron Jóhannsson, en framtíð hans er í óvissu.
Yuning, sem er tvítugur, lék sinn fyrsta landsleik fyrir Kína í júní á síðasta ári er hann skoraði tvisvar gegn Trínidad og Tóbagó.
Hann er annar sóknarmaðurinn sem West Brom kaupir í vikunni. Í gær keypti félagið Jay Rodriguez frá Southampton.

We've recruited future prospect Yuning Zhang. The 20-year-old China striker will join @werderbremen on loan.#WBAhttps://t.co/yHd0b19RJT
— West Bromwich Albion (@WBA) July 3, 2017