03.07.18 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Alban Lafont til Fiorentina (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Franski markvörðurinn Alban Lafont var að skrifa undir fimm ára samning við Fiorentina í ítalska boltanum.
Fiorentina borgar aðeins 8.5 milljónir evra fyrir táninginn sem er talinn vera meðal allra efnilegustu markvarða heims um þessar mundir.
Lafont er 19 ára gamall og hefur verið aðalmarkvörður Toulouse frá 16 ára aldri. Hann er oft sagður vera hinn franski Gianluigi Donnarumma.
Lafont flytur ekki til Flórens fyrr en í næsta mánuði því hann þarf að verja mark U19 ára landsliðs Frakka á evrópumótinu sem hefst 16. júlí.
Lafont á 19 leiki að baki fyrir yngri landsliðin og 98 leiki í efstu deild franska boltans. Mögulegt er að Lafont fari beint í byrjunarliðið hjá Fiorentina, þar sem hans helsta samkeppni er tvítugi Pólverjinn Bartlomiej Dragowski.