Fotbolti.net
03.07.18 - 10:00
Ívan Guðjón Baldursson

Berchiche til Athletic Bilbao (Staðfest) - 100 milljón evra ákvæði

Berchiche í baráttu við Lucas Vazquez.

Berchiche í baráttu við Lucas Vazquez.

Canon

Mynd: Getty Images

Spænski vinstri bakvörðurinn Yuri Berchiche er búinn að skrifa undir fimm ára samning við Athletic Bilbao í Baskahéraði.
Berchiche er sjálfur baski og á fjóra leiki að baki fyrir óviðurkennt landslið Baskahéraðs.

Berchiche var leikmaður Tottenham í tvö ár en þótti ekki nægilega góður til að taka skrefið í aðalliðið.

Undanfarin ár hefur hann verið fastamaður í byrjunarliði Real Sociedad og var keyptur til Paris Saint-Germain síðasta sumar.

Berchiche, 28 ára, fékk þokkalegan spilatíma í París og hjálpaði liðinu að vinna þrennuna þar í landi. Hann skoraði tvö og lagði upp fjögur í 32 leikjum. Af þeim voru 22 deildarleikir.

Athletic borgar 20 milljónir evra fyrir bakvörðinn og er 100 milljón evra söluákvæði í samningi hans.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.