Fotbolti.net
03.07.18 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Carragher áfram hjá Sky (Staðfest)

Carragher áfram hjá Sky (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Jamie Carragher fær vinnuna sína aftur á Sky Sports en hann var sendur í leyfi eftir tap Liverpool gegn Manchester United um miðjan mars.
Carragher lék fyrir Liverpool alla sína tíð og er enn í dag grjótharður stuðningsmaður félagsins.

Það kom í bakið á honum þennan daginn, því stuðningsmaður Manchester United elti hann í umferðinni. Maðurinn keyrði ítrekað upp að hlið Carragher og gerði grín að tapinu.

Á endanum fylltist mælirinn hans Carragher, sem skrúfaði niður rúðuna og hrækti inn í bíl til mannsins, sem náði öllu á myndband í símanum sínum. Táningsdóttir hans sást þá í farþegasætinu þar sem hún fékk gusu yfir sig.

Talsmaður Sky segir að Carragher fái að snúa aftur til starfa því hann hefur sýnt iðrun og fullvissað yfirmenn sína um að slíkt muni aldrei henda aftur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.