03.07.18 - 08:34
Magnús Már Einarsson
FH fær ungan færeyskan framherja á láni (Staðfest)

Thomsen (til vinstri) í baráttu við Leroy Sane í leik með U21 árs landsliði Færeyja.

Mynd: Getty Images

FH hefur fengið færeyska framherjann Jakup Thomsen á láni frá FC Midtjylland út tímabilið. Danska félagið staðesti þetta í dag.
Jakup er tvítugur en hann á að baki leiki með U21 árs landsliði Færeyja.
Jakup var á láni hjá Thisted í dönsku B-deildinni á síðasta tímabili en hann er samningsbundinn Midtjylland til 2022.
„Þetta er möguleiki fyrir Jakup til að sanna sig og fá reynslu sem fótboltamaður,\" sagði Svend Graversen yfirmaður íþróttamála hjá Midtjylland.
Jakup fær leikheimild með FH þegar félagaskiptaglugginn opnar 15. júlí en hann verður á láni hjá félaginu út tímabilið.