03.07.18 - 17:52
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lee Grant til Manchester United (Staðfest)

Mynd: Man Utd

Mynd: Man Utd
Hinn 35 ára gamli Lee Grant er genginn í raðir Manchester United frá Stoke City. Þetta var staðfest rétt í þessu.
Talið er að Man Utd borgi 1,5 milljónir punda fyrir Grant.
Hann kemur til með að vera þriðji markvörður Man Utd á eftir David de Gea og Sergio Romero. Joel Pereira, sem var þriðji markvörður á síðasta tímabili, fær væntanlega að fara á láni.

Stoke fékk Grant frá Derby County í sumarið 2016 vegna meiðsla Jack Butland. Grant lék 30 leiki á því tímabili en spilaði aðeins þrjá leiki þegar Stoke féll úr ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Grant átti einn sinn besta leik á ferlinum, ef ekki þann besta, í október 2016 þegar Stoke gerði jafntefli við Man Utd á Old Trafford.
Hann er þriðji leikmaðurinn sem Man Utd fær í sumar á eftir miðjumanninum Fred og bakverðinum Diogo Dalot.