Fotbolti.net
03.07.18 - 08:53
Magnús Már Einarsson

Mikael Anderson til Excelsior á láni (Staðfest)

Mikael Neville Anderson.

Mikael Neville Anderson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Íslenski U21 árs landsliðsmaðurinn Mikael Neville Anderson hefur gengið til liðs við Excelsior í hollensku úrvalsdeildinni á láni frá FC Midtjylland í Danmörku.

Fótbolti.net sagði frá félagaskiptunum í síðustu viku en Midtjylland hefur nú staðfest að þau séu frágengin.
Hinn tvítugi Mikael var á láni hjá Vendsyssel í dönsku B-deildinni á síðasta tímabili þar sem hann stóð sig vel. Mikael skoraði sex mörk í tuttugu leikjum og átti stóran þátt í að liðið fór upp í dönsku úrvalsdeildina.

„Við höfum mikla trú á Mikael og við sjáum reynsluna í hollensku úrvalsdeildinni sem möguleika fyrir hann til að bæta sig ennþá meira til að hann geti farið beint í liðið hér hjá FC Midtjylland á næsta ári,\" sagði Svend Graversen yfirmaður íþróttamála hjá Midtjylland.

Mikael hefur búið í Danmörku frá 11 ára aldri og hann á að baki leiki með U18 og U19 ára landsliðum Dana.

Móðir Mikaels er frá Íslandi en faðir hans er frá Jamaíka. Hann ákvað á síðasta ári að spila frekar með íslenska U21 landsliðinu heldur en því danska. Fyrr á þessu ári spilaði hann sinn fyrsta A-landsleik með Íslandi gegn Indónesíu.

„Það er frábært að vera á Íslandi aftur. Ég hef hlakkað til að koma aftur til Íslands og þetta er stórt fyrir mig og fjölskyldu mína, Þeir (Danirnir) vissu að ég vildi spila fyrir Ísland því ég á fjölskyldu frá Íslandi. Þetta var erfitt val en ég valdi Ísland af því að fjölskyldan er héðan,\" sagði Mikael í viðtali við Fótbolta.net á síðasta ári, fyrir leik með U21-landsliðinu.

Excelsior endaði í ellefta sæti af átján liðum í hollensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili en á meðal leikmanna liðsins er markvörðurinn Ögmundur Kristinsson.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.