Daníel Finns Matthíasson skoraði frábært sigurmark fyrir Leikni R. þegar liðið vann endurkomusigur á Keflavík í Lengjudeildinni í kvöld. Leiknir er með sjö stig í 4. sæti deildarinnar.
„Hér er svakalegt skot af löngu færi - Hvaðan kom þetta?" spurði Ingvar Örn Ákason þegar hann lýsti markinu á Stöð 2 Sport í kvöld.
Markið kom á 60. mínútu leiksins. Það má sjá hér að neðan en svona lýsti Sverrir Örn Einarsson, textalýsir á Fótbolti.net markinu:: „Maaaark!!!! Sævar Atli fær boltann í fætur með bakið í markið, leggur botlann í hlaupið hjá Daníel sem lætur vaða af 25 metrum og boltinn syngur í samskeytunum. Sindri átti aldrei möguleika í markinu! Þvílíkt skot!"

Rosalegt sigurmark hjá Daníeli Finns Matthíassyni í kvöld fyrir @LeiknirRvkFC gegn @FcKeflavik! pic.twitter.com/8bqSxSJwDh
— Stöð 2 Sport (@St2Sport) July 3, 2020
Þessi fótur hjá @dannifinns - Mun horfa á þetta. svona 50x fyrir svefn #fotboltinet https://t.co/R30xqliWGA
— Elvar Geir Magnússon (@elvargeir) July 3, 2020
Athugasemdir