sun 03. júlí 2022 18:20
Sverrir Örn Einarsson
Byrjunarlið Keflavíkur og Fram: Almarr Ormars beint í byrjunarliðið
Amarr er ekki ókunnugur því að leika með Fram
Amarr er ekki ókunnugur því að leika með Fram
Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir
Ellefta umferð Bestu deildarinnar heldur áfram í kvöld með einum leik. Á HS Orkuvellinum í Keflavík taka heimamenn á móti liði Fram.
Aðeins eitt stig skilur liðin að í 7-8. sæti deildarinnar fyrir leikinn og má teljast morgunljóst að hart verður barist.

Lestu um leikinn: Keflavík 3 -  1 Fram

Hjá Keflavík tekur Ivan Kaliuzhnyi út leikbann eftir rautt spjald í síðasta leik gegn Stjörnunni og hefur því að öllum líkindum leikið sinn síðasta leik fyrir Keflavík Ernir Bjarnason tekur stöðu hans á miðjunni. Ingimundur Aron Guðnason er þá ekki með Keflavík í kvöld en Patrik Johannesen kemur inn í hans stað.

Hosine Bility er farinn fra´fram líkt og fram kom í vikunni og leikur því ekki frekar með Fram. Bilty fer úr liðinu frá bikartapinu gegn Fram sem og Jesus Gomes og Jannik Holmsgaard
Inn í þeirra stað koma þeir Almarr Ormarsson, Hlynur Atli Magnússon og Alex Freyr Elísson

Byrjunarlið Keflavíkur
1. Sindri Kristinn Ólafsson (m)
4. Nacho Heras
5. Magnús Þór Magnússon (f)
10. Kian Williams
16. Sindri Þór Guðmundsson
18. Ernir Bjarnason
23. Joey Gibbs
24. Adam Ægir Pálsson
25. Frans Elvarsson
26. Dani Hatakka
77. Patrik Johannesen

Byrjunarlið Fram
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
6. Gunnar Gunnarsson
7. Fred Saraiva
11. Almarr Ormarsson
14. Hlynur Atli Magnússon (f)
17. Alex Freyr Elísson
20. Tryggvi Snær Geirsson
21. Indriði Áki Þorláksson
23. Már Ægisson
28. Tiago Fernandes
77. Guðmundur Magnússon

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner