Fotbolti.net
03.10.26 - 17:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Sannfærandi sigur á Búlgaríu

Sannfærandi sigur á Búlgaríu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Eimskip
Ísland 3 - 0 Búlgaría
1-0 Orri Steinn Óskarsson ('37 )
2-0 Orri Steinn Óskarsson ('60 )
2-0 Orri Steinn Óskarsson ('84 , misnotað víti)
3-0 Mikael Egill Ellertsson ('90 )
Lestu um leikinn
Ísland vann Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar á Laugardalsvelli í dag.

Búlgaría fékk úrvalsfæri til að komast yfir en Atanas Iliev var ekki nógu þolinmóður og skaut hátt yfir. Andri Fannar Baldursson átti síðan hörku skot stuttu síðar en það var vel varið.

Ísland náði forystunni á 37. mínútu. Hákon Arnar Haraldsson átti sendingu, Ísak Bergmann Jóhannesson lét boltann fara og hann fór til Orra Steins Óskarssonar sem skoraði.

Orri tvöfaldaði forystuna eftir klukkutíma leik. Hákon sendi boltann á bakvið vörnina á MIkael Neville Anderson. Hann sendi boltann fyrir og Orri setti boltann í netið.

Orri hefði getað fullkomnað þrennuna þegar Ísland fékk vítaspyrnu þegar boltinn fór í höndina á Iliev. Vítaspyrnan var hins vegar ekki nægilega góð og Daniel Naumov í marki Búlgaríu varði.

Mikael Egill Ellertsson innsiglaði sigurinn undir lok leiksins. Mikael tók gott hlaup og Orri Steinn fann hann. Mikael slapp í gegn og kláraði færið af öryggi.

Gríðarlega sterkur og mikilvægur sigur staðreynd. Ísland er á toppnum með sjö stig, tveimur stigum á undan Eistum sem unnu Lúxemborg í dag.
Sannfærandi sigur á Búlgaríu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.