Fotbolti.net
03.07.26 - 16:30
Elvar Geir Magnússon

Segir Mexíkó varla miðlungslið og England hafi ekkert að óttast

Brad Friedel kom til Íslands með Aston Villa á sínum tíma.

Brad Friedel kom til Íslands með Aston Villa á sínum tíma.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Á miðnætti á sunnudagskvöld (aðfaranótt mánudags) mætast Mexíkó og England í 16-liða úrslitum HM. Brad Friedel, fyrrum landsliðsmaður Bandaríkjanna, segir að enska liðið hafi ekkert að óttast í komandi viðureign.

Leikurinn fer fram á Azteca vellinum goðsagnakennda í Mexíkó og mikið hefur verið gert úr því í fjölmiðlum hversu gott sigurhlutfall mexíkóska liðsins á vellinum er. En það ber líka að horfa til þess hversu mörgum slökum liðum það hefur mætt þar.

„Mexíkó er svo mikið miðlungslið. Þeir eru vanir því að spila hátt yfir sjávarmáli og virka þá hraðari en aðrir. En þeir eru miðlungslið, eða í rauninni undir meðallagi," segir Friedel.

„England má bara ekki fá á sig fyrsta markið. Þá reyna þeir að kæfa þig. Aðstæðurnar eru erfiðar, hæðin er erfið og hitastigið líka. En England er bara svo miklu betra lið en Mexíkó. Það væri skömm að detta út gegn þeim."

Á landsliðsferli sínum spilaði Friedel sex sinnum gegn Mexíkó og aðeins einu sinni vann mexíkóska liðið. Að því sögðu hefur Mexíkó ekki enn fengið á sig mak á þessu heimsmeistaramóti.
Englandi stafar mikil ógn af óvæntri hetju Mexíkó
TENGT EFNI

Englandi stafar mikil ógn af óvæntri hetju Mexíkó

Segir Mexíkó varla miðlungslið og England hafi ekkert að óttast
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.