Fotbolti.net
09.11.26 - 20:09
Ívan Guðjón Baldursson

Dýrmætur sigur hjá Júlíusi og félögum - Köln lagði Leipzig

Dýrmætur sigur hjá Júlíusi og félögum - Köln lagði Leipzig
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það komu nokkur Íslendingalið við sögu í leikjum dagsins þar sem Júlíus Mar Júlíusson fékk að spreyta sig í afar dýrmætum sigri hjá Kristiansund sem er í bullandi fallbaráttu í efstu deild í Noregi.
Júlíusi Mar var skipt inn af bekknum á 80. mínútu og hjálpaði Kristiansund að halda í 1-0 forystu til að leggja Vålerenga að velli.

Þetta er annar sigur liðsins í röð í deildinni og er Kristiansund aðeins tveimur stigum frá öruggu sæti þegar fjórar umferðir eru eftir af tímabilinu.

Vålerenga er sex stigum fyrir ofan Kristiansund og var Kolbeinn Birgir Finnsson ekki í hóp vegna meiðsla.

Á sama tíma komu Ingimar Arnar Kristjánsson og Ólafur Dan Hjaltason inn af bekknum á lokakaflanum í tapi hjá Aarhus Fremad í næstefstu deild í Danmörku.

Aarhus tapaði 3-0 gegn toppliði Hvidovre og situr í 5. sæti með 18 stig eftir 14 umferðir.

Að lokum var Sædís Rún Heiðarsdóttir ónotaður varamaður í sigri FC Köln gegn RB Leipzig í efstu deild í Þýskalandi.

Köln vann 3-1 og er með 15 stig eftir 9 umferðir. Sandra María Jessen er að glíma við meiðsli og var ekki í hóp hjá Köln.

Emilía Kiær Ásgeirsdóttir var þá ekki í hóp hjá tapliði RB Leipzig, sem situr eftir með 10 stig eftir tapið.

Kristiansund 1 - 0 Valerenga

Hvidovre 3 - 0 Aarhus Fremad

Köln 3 - 1 Leipzig
Dýrmætur sigur hjá Júlíusi og félögum - Köln lagði Leipzig
Canon

Mynd: Aarhus Fremad

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.