09.11.26 - 19:25
Ívan Guðjón Baldursson
Veigar Páll snýr aftur í Stjörnuna (Staðfest)

Mynd: Stjarnan

Mynd: Stjarnan
Veigar Páll Gunnarsson er snúinn aftur í Stjörnuna eftir að hafa verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla.
Veigar Páll þekkir vel til í Garðabæ eftir að hafa alist þar upp og leikið um 200 leiki fyrir meistaraflokk. Þá var hann aðstoðarþjálfari Rúnars Páls Sigmundssonar á árunum 2018 og 2019, þegar Stjarnan vann síðast Mjólkurbikarinn. Nú taka þeir upp samstarfið að nýju.
Veigar Páll hefur gert flotta hluti við stjórnvölinn hjá KFG, venslaliði Stjörnunnar, undanfarin ár.
„Það er góð tilfinning að vera kominn aftur í Stjörnuna. Ég hlakka til að hitta strákana og hefja störf. Það býr mikið í þessum hópi og við ætlum að byggja á þeim góða grunni sem þegar er til staðar. Við viljum spila fótbolta sem Garðbæingar geta verið stoltir af og ég hlakka til að sjá ykkur í stúkunni," segir Veigar Páll.