Davíð Snorri: Gæti bara vel verið met

Davíð Snorri er aðstoðarþjálfari landsliðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Brynjólfur Andersen er einn af þremur framherjum íslenska landsliðsins sem skoruðu um helgina.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sex landsliðsmenn skoruðu um helgina.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kristall Máni var sömuleiðis á skotskónum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það er mjög gott stand á strákunum eins og staðan er

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Davíð Snorri er aðstoðarþjálfari landsliðsins.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Leikmenn eru að koma til Spánar í dag og er fyrsta fótboltaæfingin á morgun. Framundan eru tveir leikir hjá liðinu í Þjóðadeildinni, fyrst útileikur gegn Búlgaríu og svo heimaleikur gegn Lúxemborg. Ísland vann báða leikina gegn sömu þjóðum í síðasta landsleikjaglugga, og þá báða 3-0.

Aldrei fleiri mætt með skotskóna í landsliðsverkefni?
Ísland er á toppi riðilsins eftir fyrstu fjóra leikina og markmiðið er að enda í toppsæti riðilsins. Með því tryggir liðið sér sæti í B-deild næstu Þjóðadeildar.
„Það er ekkert leyndarmál að við erum með markmið um að klára þennan riðil, enda efstir í riðlinum. Hlutverkið okkar í þessum glugga er að halda áfram því sem við erum búin að gera vel. Auðvitað er alltaf eitthvað sem við getum bætt okkur í og við reynum að fínpússa það. En við ætlum að loka þessu, það er engin spurning."
Fyrri leikurinn sérstakur
Fyrst er útileikur gegn Búlgaríu, er eitthvað sem við tökum úr fyrri leiknum gegn þeim inn í leikinn á föstudaginn?
„Já, hellingur. Fyrri leikurinn gegn þeim var náttúrulega dálítið sérstakur að því leyti að þeir fá inn nýjan þjálfara bara tveim dögum fyrir. Hann er ennþá með liðið. Við sáum að hann var búinn að setja aðeins meira sitt mark á liðið í þeim leik sem hann spilaði síðan eftir okkar leik sem var síðasti leikurinn í glugganum."
„Við reynum svona að finna út hvað við gerðum vel og svo mögulega hvort hann sé breyta einhverju. Við eigum alveg von á einhverju smá nýju frá þeim."
Var pínu á nálinni
Davíð er ánægður með standið á mönnum eftir síðasta landsleikjaglugga komandi í þetta tveggja leikja verkefni.
„Hvert einasta landslið og hver einasti leikmaður sem spilar fyrir landsliðið var að fara í gegnum þennan fjögurra leikja glugga í fyrsta skipti síðast. Maður var pínu á nálinni kannski fyrstu tvær vikurnar eftir þetta en það er ekki annað hægt að segja að okkar leikmenn hafi staðið sig vel. Þeir eru búnir að gera hrikalega vel, komnir í gegnum þetta. Þetta er bara á mjög góðu róli hjá okkur."
Sex sem skoruðu um helgina
Í dag var vakin athygli á því að margir landsliðsmenn koma inn í verkefnið eftir að hafa skorað um helgina, en alls sex voru á skotskónum. Hefurðu séð eitthvað álíka?
„Ég las nú um að þetta gæti verið mögulegt met og ég held að það geti bara alveg verið. Þetta er frábært, frábært að centerarnir okkar eru að skora mörk úr öllum áttum og í öllum regnbogans litum."
„Það er mjög gott stand á strákunum eins og staðan er og vonandi geta menn tekið það jákvæða með sér inn í gluggann og haldið áfram eftir það," segir Davíð.
Viðtalið er lengra og má sjá í heild sinni í spilaranum efst.

Brynjólfur Andersen er einn af þremur framherjum íslenska landsliðsins sem skoruðu um helgina.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Sex landsliðsmenn skoruðu um helgina.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kristall Máni var sömuleiðis á skotskónum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Það er mjög gott stand á strákunum eins og staðan er

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
