Fotbolti.net
09.11.26 - 16:53
Elvar Geir Magnússon
- Skrifar frá La Finca

Arnar mætir degi seinna af persónulegum ástæðum

Íslenska hópnum líður eins og heima hjá sér

La Finca hótelið þar sem Ísland er við undirbúning.

La Finca hótelið þar sem Ísland er við undirbúning.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Eimskip
Íslenska landsliðið hefur verið að koma saman á Spáni í dag en þegar þessi frétt er skrifuð eru síðustu leikmennirnir að mæta á La Finca hótelið á Alicante svæðinu.

Þetta er hótel sem íslenska landsliðið þekkir vel en þetta er í þriðja sinn á síðustu árum sem liðið tekur undirbúning hér. Menn eru því farnir að þekkja starfsliðið vel, æfingavellirnir eru góðir, allur aðbúnaður til fyrirmyndar og greinilegt er að leikmönnum líður eins og heima hjá sér.
Snýst ekki bara um að vinna riðilinn heldur líka safna stigum
TENGT EFNI

Snýst ekki bara um að vinna riðilinn heldur líka safna stigum

Landsliðsþjálfarinn Arnar Gunnlaugsson er ekki mættur á svæðið en af persónulegum ástæðum mætir hann degi seinna en liðið kemur saman og flýgur hingað til Spánar á morgun.

Liðið mun taka öflugan undirbúningsdag á La Finca á morgun og svo á miðvikudag verður flogið til Plovdiv í Búlgaríu þar sem leikið verður gegn Búlgörum á föstudag. Riðlinum lýkur síðan með leik gegn Lúxemborg á Laugardalsvelli næsta mánudag.

Ísland er ósigrað á toppi riðilsins og gæti tryggt sér sigur í riðlinum á föstudaginn en Lúxemborg og Eistland mætast á sama tíma og strákarnir okkar leika gegn Búlgörum. Eftsa lið riðilsins mun tryggja sér sæti í B-deildinni en liðið sem endar í öðru sæti mun fara í umspil um að komast upp.

Fótbolti.net fylgir landsliðinu að sjálfsögðu og var liðshótelið heimsótt í dag. Viðtöl við landsliðsmenn og Davíð Snorra Jónasson aðstoðarlandsliðsþjálfara eru væntanleg á síðuna.
Þetta er í þriðja sinn sem landsliðið tekur undirbúning á La Finca.

Þetta er í þriðja sinn sem landsliðið tekur undirbúning á La Finca.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Arnar mætir degi seinna af persónulegum ástæðum
Canon

Mynd: KSÍ

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.