03.08.16 - 16:30
Magnús Már Einarsson
Clark og Diame til Newcastle (Staðfest)

Mohamed Diame er farinn til Newcastle.

Mynd: Getty Images

Mohamed Diame er farinn til Newcastle.

Mynd: Getty Images
Newcastle hefur keypt varnarmanninn Ciaran Clark í sínar raðir frá Aston Villa. Newcastle borgaði 5,1 milljón punda fyrir Clark en það var riftunarverðið í samningi hans.
Newcastle hefur einnig keypt miðjumanninn Mohamed Diame frá Hull á 4,5 milljónir punda.
Diame hjálpaði Hull upp í ensku úrvalsdeildina í vor en hann skoraði sigurmarkið í umspili gegn Sheffield Wednesday.
Diame er 29 ára gamall en hann lék með West Ham í tvö ár áður en hann fór til Hull árið 2014.

Hinn 26 ára gamli Clark spilaði með írska landsliðinu á EM í sumar en hann hefur verið hjá Aston Villa frá ellefu ára aldri. Clark er örvfættur varnarmaður en hann getur bæði spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður.