Fotbolti.net
03.08.16 - 15:28
Elvar Geir Magnússon

Man City búið að kaupa Jesus (Staðfest)

Gabriel Jesus.

Gabriel Jesus.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester City vann samkeppni við Barcelona um Gabriel Jesus, 19 ára brasilískan framherja sem kemur frá Palmeiras. City kaupir Jesus á 27 milljónir punda.

Stráknum er oft líkt við Neymar en hann skoraði 19 mörk í 30 leikjum fyrir Palmeiras á síðasta tímabili. City lánar hann aftur til Palmeiras til janúarmánaðar.
„Manchester City er eitt besta félag heims og ég er hæstánægður með að hafa skrifað undir. Margir hæfileikaríkir leikmenn eru í liðinu og knattspyrnustjórinn, Pep Guardiola, er stórkostlegur. Ég get lært mikið af honum. Ég held að ég og stuðningsmenn City munum eiga frábæra framtíð saman.\" segir Jesus.

Jesus verður í eldlínunni með landsliði Brasilíu á Ólympíuleikunum þar sem hann og Neymar ætla að láta ljós sitt skína.

Jesus hefur skrifað undir fimm ára samning við City en enska félagið hefur eytt um 100 milljónum punda í glugganum eftir að hafa fengið hann, Ilkay Gundogan, Nolito og Leroy Sane.

Þá er talið að City sé nálægt því að fá kólumbíska sóknarmanninn Marlos Moreno. Líklegt er að City láni hann beint til Deportivo de La Coruna. Einnig eru viðræður um möguleg kaup á varnarmanninum John Stones frá Everton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.