03.08.16 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson
Max Kruse til Werder Bremen (Staðfest)

Veitir Aroni Jó samkeppni

Mynd: Getty Images

Veitir Aroni Jó samkeppni

Mynd: Getty Images

Þýska úrvalsdeildarliðið Werder Bremen hefur gengið frá kaupum á þýska sóknarmanninum Max Kruse sem kemur til liðsins eftir eins árs dvöl hjá Wolfsburg.
Miklar vonir voru bundnar við Kruse þegar hann gekk í raðir Wolfsburg frá Borussia Mönchengladbach fyrir ári síðan en hann stóð ekki undir þeim væntingum og skoraði aðeins sex mörk í 31 leik í Bundesligunni á síðustu leiktíð.
Þessi 28 ára gamli framherji þekkir til í herbúðum Werder Bremen eftir að hafa verið á mála hjá félaginu fyrir tíu árum síðan.
Kruse á 14 A-landsleiki að baki fyrir Þýskaland og ljóst að hann mun veita Aroni Jóhannssyni samkeppni um sæti í liði Bremen á komandi leiktíð.
Þess má til gamans geta að knattspyrna er ekki eina atvinna Kruse því hann þykir afar lunkinn pókerspilari og hefur keppt á nokkrum stórum pókermótum.