Fotbolti.net
03.08.16 - 06:00
Arnar Geir Halldórsson

Roberto Soriano til Villarreal (Staðfest)

Soriano á leið í spænska boltann

Soriano á leið í spænska boltann

Canon

Mynd: Getty Images

Spænska úrvalsdeildarliðið Villarreal hefur fest kaup á ítalska miðjumanninum Roberto Soriano frá Sampdoria.
Kaupverðið er talið vera í kringum 14 milljónir evra og gerir þessi 25 ára gamli leikmaður fimm ára samning við Villarreal.

Hann var í lykilhlutverki hjá Sampdoria á síðustu leiktíð og skoraði átta mörk en liðið endaði í 15.sæti Serie A.

Soriano á átta landsleiki að baki fyrir ítalska A-landsliðið en hann var ekki í lokahópi Ítalíu á EM í Frakklandi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.