Fotbolti.net
03.08.16 - 14:30
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Roma kaupir Salah frá Chelsea (Staðfest)

Formlega í eigu Roma.

Formlega í eigu Roma.

Canon

Mynd: Getty Images

Chelsea staðfesti í dag að félagið hefði selt egypska miðjumanninn Mohamed Salah til Roma en þar var hann á lánssamningi síðasta tímabil.

Þessi 24 ára leikmaður sló í gegn hjá Basel í Sviss og var keyptur til Chelsea þar sem hann náði ekki að heilla menn.
Eftir aðeins 13 spilaða leiki í ensku úrvalsdeildinni var hann sendur á lán til Fiorentina þar sem hann skoraði sex mörk í 16 leikjum í ítölsku A-deildinni.

Roma ákvað í kjölfarið að fá hann til sín.

Salah skoraði 14 mörk og lagði upp átta í 34 leikjum með Roma síðasta tímabil en liðið náði þriðja sæti og þar með þátttökurétti í Meistaradeild Evrópu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.