03.08.17 - 13:06
Elvar Geir Magnússon
Fulham lánar Ragga Sig til Rússlands (Staðfest)

Raggi Sig er aftur kominn til Rússlands.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ragnar segist ekki sjá eftir því að hafa farið til Fulham.

Mynd: Getty Images

Enska félagið Fulham hefur lánað íslenska landsliðsmiðvörðinn Ragnar Sigurðsson til Rubin Kazan í Rússlandi í eitt ár.
Rússneska félagið hefur staðfest þetta.
Rússneska félagið hefur staðfest þetta.
Ragnar hefur um árabil verið einn allra besti og mikilvægasti leikmaður íslenska landsliðsins. Fyrir ári síðan gekk hann í raðir Fulham en náði ekki að sýna sínar bestu hliðar í Championship-deildinni.
Hann þurfti mikið að verma varamannabekkinn á Englandi eftir að hafa leikið frábærlega með Íslandi á Evrópumótinu í Frakklandi.
Ragnar hefur áður spilað í Rússlandi en hann lék með Krasnodar á árunum 2014-2016. Rubin Kazan endaði í níunda sæti rússnesku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð. Liðið er með þrjú stig að loknum þremur umferðum á yfirstandandi tímabili.
„Ég vissi að þetta gæti orðið erfitt fyrir mig hjá Fulham. Þegar að þjálfarinn er búinn að mynda sér ákveðna skoðun um þig þá skiptir í raun ekki máli hvað þú gerir, stjórinn sér það alltaf á neikvæðan hátt,\" sagði Ragnar í viðtali við 433.is í dag.
Ragnar segist hafa fundið það í æfingaferð með Fulham að hann væri ekki að fara að fá tækifæri frá stjóra liðsins, Slavisa Jokanovic. Hann segist ekki sjá eftir því að hafa farið til Fulham.
„Það var gaman að prófa það að spila í Championship-deildinni og ég veit að ég get spilað á þessu leveli. Ef maður hefði haft smá heppni með sér og spilað vel þá hefði þetta alveg eins getað gengið upp hjá manni. Ég fer ekki frá Englandi hugsandi það að ég hafi ekki verið nógu góður því að ég veit að ég get spilað í þessari deild. Ég fer ekki með neitt svekkelsi héðan, núna tekur bara eitthvað nýtt og spennandi við og við sjáum hvernig það gengur upp.\"
Rubin Kazan hefur tvívegis orðið rússneskur meistari, 2008 og 2009. Tveir landsliðsmiðverðir Íslands spila nú í rússnesku deildinni en Sverrir Ingi Ingason leikur með Rostov sem hefur fjögur stig að loknum þremur umferðum.
Ragnar og Sverrir verða væntanlega báðir í komandi landsliðshóp Íslands sem mætir Finnlandi ytra í byrjun september en okkar lið er í góðum málum í undankeppni HM.

Welcome Ragnar! The Icelandic defender joins from Fulham on a 1 year loan. pic.twitter.com/AQQg4bhvfS
— Rubin Kazan UK (@RubinKazanUK) August 3, 2017