03.08.17 - 19:00
Stefnir Stefánsson
Kelechi Iheanacho til Leicester (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Framherjinn knái, Kelechi Iheanacho hefur gengið til liðs við Leicester City frá Manchester City. En þetta kom fram í tilkynningu sem að Leicester birti á heimasíðu sinni rétt í þessu.
Iheanacho sem er tvítugur landsliðsmaður Nígeríu, hefur skorað 21 mark í 64 leikjum síðan hann spilaði sinn fyrsta leik fyrir Manchester City í ensku úrvalsdeildinni.
„Mér líður vel og ég er ánægður að vera orðinn hluti af þessu liði.\" sagði Iheanacho við undirskriftina.
„Ég sé metnaðinn sem býr í þessu félagi og eftir að hafa talað við þjálfarann þá veit ég upp á hár hvað er ætlast til af mér. Ég mun gera mitt besta til að hjálpa liðinu.\" bætti hann svo við.
Talið er að Leicester hafi borgað um 25 milljónir punda fyrir Iheanacho en hann er fjórði leikmaðurinn sem að Craig Shakespeare sækir. En þeir Eldin Jakupovic, Harry Maguire og Vicente Iborra hafa einnig allir nýlega gengið til liðs við félagið.

He's signed! 🙌@67Kelechi joins #lcfc on a five-year deal for an undisclosed fee: https://t.co/iormp1FlQf#WelcomeKelechi pic.twitter.com/wgZMPpn3tG
— Leicester City (@LCFC) August 3, 2017