Fotbolti.net
03.08.17 - 23:00
Stefnir Stefánsson

Modou Barrow til Reading (Staðfest)

Barrow er farinn frá Swansea

Barrow er farinn frá Swansea

Canon

Mynd: Getty Images

Reading hefur gengið frá kaupunum á Moudou Barrow, en hann kemur til félagsins frá Swansea City.

Barrow sem getur bæði leikið stöðu kantmanns sem og framherja fékk lítil sem engin tækifæri hjá félaginu eftir að Paul Clement tók við stjórnartaumunum.

Hann samdi við Reading til fjögurra ára og er kaupverðið talið vera 1.5 milljón punda.

„Þetta er frábært tækifæri fyrir mig til að ganga til liðs við frábært félag sem hefur flotta leikmenn innanborðs.\" sagði Barrow við undirskriftina.

„Stuðningsmenn Swansea hafa verið mér frábærir allt frá fyrsta degi. Ekki bara þegar ég spilaði þar heldur líka utan vallar.\"

„En á þessum tímapunkti á mínum ferli fannst mér ég þurfa að breyta til. Mér finnst að ég þurfi að spila fótbolta reglulega. Ég vona að ég nái því hér hjá Reading og ég vona að ég muni gera vel hér.\"
bætti Barrow við.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.