03.08.17 - 19:44
Stefnir Stefánsson
Neymar til PSG (Staðfest)
Upphæðin nýtt heimsmet

Neymar er orðinn leikmaður PSG

Mynd: Getty Images

Neymar er orðinn leikmaður PSG

Mynd: Getty Images
Paris Saint-Germain hafa gengið frá kaupum á Brasilíumanninum Neymar fyrir 200 milljónir punda sem er heimsmet.
Hinn 25 ára gamli Neymar gengur til liðsins frá Barcelona. Talið er hann hann muni þéna um 782 þúsund pund á viku fyrir skatt. En hann skrifaði undir 5 ára samning við Parísarliðið.
Upphæðin sem að Paris Saint-Germain borgaði Barcelona svo að skiptin gætu gengið í gegn er nýtt heimsmet.
Fyrra heimsmetið átti Manchester United þegar þeir keyptu Paul Pogba fyrir 89 milljónir punda í ágúst í fyrra.
Mikið hafði rætt og ritað um framtíð Neymar síðastliðnar vikur, á miðvikudaginn í síðustu viku ku hann hafa mætt með föður sínum og umboðsmanni til æfinga hjá Barcelona og tjáð félaginu það að hann vildi yfirgefa félagið.
Ernesto Valverde stjóri Barcelona gaf honum þá grænt ljós til að ráða framtíð sinni sjálfur.
Á Spáni er reglugerð sem segir til um að til þess að klásúla verði virk svo að leikmanni sé frjálst að semja við önnur félög, þurfi leikmaðurinn sjáfur að greiða upp umsamda upphæð sem klásúlan segir til um.
En þegar að lögfræðingar Neymar reyndu að koma greiðslunni í gegn til Barcelona á fimmtudaginn í síðustu viku. Þá hafnaði stjórn Spænsku deildarinnar greiðslunni.
En forráðamenn deildarinnar telja það að Paris Saint-Germain sé að brjóta svokallaðar FFP(Financial Fair Play) reglur.
Þá brugðu lögfræðingar hans á það ráð að greiða upphæðina beint til Barcelona. Barcelona hafði þó áður sagt að þeir ætluðu sér að stefna PSG til Evrópska knattspyrnusambandsins (UEFA) ef að þeir myndu reyna að virkja klásúluna.
Nú virðist sem að allir aðilar hafi náð að komast að samkomulagi því að Paris Saint-Germain hefur tilkynnt að Neymar sé nú orðinn leikmaður félagins.

Paris Saint-Germain is very happy to announce the arrival of Neymar Jr ➡ https://t.co/lKFj4qPDYA #BemvindoNeymarJR 🇧🇷 pic.twitter.com/rSvlBiKX6D
— PSG Officiel (@PSG_inside) August 3, 2017