03.08.17 - 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Simon Kjær í Sevilla (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Sevilla hefur keypt danska varnarmanninn Simon Kjær frá Fenerbache fyrir 12,5 milljónir evra.
Kjær skrifaði undir fjögurra ára samning við spænska félagið.
Hann kemur til með að fylla skarð Adil Rami í vörninni, en Rami var seldur til Marseille í síðasta mánuði.

Hinn 28 ára gamli Kjær fór til Fenerbache árið 2015 og síðan þá hefur hann spilað 55 leiki í tyrknesku úrvalsdeildinni.
Hann er sjöundi leikmaðurinn sem Sevilla fær til sín í sumar. Hinir leikmennirnir sem hafa komið til Andalúsíu eru Nolito, Jesus Navas, Luis Muriel, Sebastian Corchia, Guido Pizarro og Ever Banega.

💪🏼💪🏼💪🏼💪🏼 @simonkjaer1989 is now in Nervión!!!https://t.co/1H4y2Xp5Rp #vamosmisevilla
— Sevilla FC (@SevillaFC_ENG) August 2, 2017