03.08.18 - 10:56
Elvar Geir Magnússon
Arturo Vidal til Barcelona (Staðfest)

Nýjasti leikmaður Barcelona.

Mynd: Getty Images

Nýjasti leikmaður Barcelona.

Mynd: Getty Images
Spánarmeistararnir í Barcelona hafa gengið frá kaupum á miðjumanninum Arturo Vidal frá Bayern München á rúmlega 27 milljónir punda.
Þessi 31 árs landsliðsmaður Síle hefur verið hjá Bayern síðan hann kom frá Juventus 2015.

Hann hefur staðist læknisskoðun og skrifað undir samning.
Barcelona hefur eytt yfir 100 milljónum punda í sumar, fengið franska varnarmanninn Clement Lenglet og Brasilíumennina Arthur og Malcom. Þá höfðu Börsungar rætt við Paris Saint-Germain um Adrien Rabiot (23) en eftir að Frakklandsmeistararnir sögðu Rabiot ekki til sölu þá var snúið sér að Vidal.
Barca er einnig nálægt því að fá senegalska varnarmanninn Moussa Wague frá Eupen í Belgíu. Hann er aðeins 19 ára og fer fyrst í B-liðið.
Talið var líklegast að Vidal færi til Inter en ítalska félagið hefur gert metnaðarfulla tilraun til að fá króatíska miðjumanninn Luka Modric frá Real Madrid.