03.08.18 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Fyrrverandi markvörður Einherja kominn til Juve (Staðfest)

Doris Bacic staldraði aðeins við hjá SC Sand áður en hún kom til Einherja.

Mynd: Getty Images

Doris Bacic staldraði aðeins við hjá SC Sand áður en hún kom til Einherja.

Mynd: Getty Images

Króatíski landsliðsmarkvörðurinn Doris Bacic, sem lék fyrir Einherja í 2. deildinni í fyrrasumar, er búinn að skrifa undir samning við ítalska stórveldið Juventus.
Bacic, sem er 23 ára, var mikill yfirburðarmarkvörður í íslenska boltanum og fór beint úr Einherja til Anderlecht í belgísku toppbaráttuna. Þar spilaði hún sex leiki og hélt hreinu í fjórum þeirra er Anderlecht tryggði sér belgíska titilinn.
Juve tók eftir þessum frábæra markverði og er búið að festa kaup á Bacic, sem á 32 landsleiki að baki þrátt fyrir ungan aldur.
Bacic verður varamarkvörður Juve til að byrja með og mun keppast við Laura Giuliani um byrjunarliðssæti.
Bacic stoppaði við hjá Arsenal og Rosengård á táningsárunum og á framtíðina fyrir sér í atvinnumennsku.