Fotbolti.net
03.08.18 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Heimir ekki til Basel - Koller ráðinn í starfið (Staðfest)

Heimir ekki til Basel - Koller ráðinn í starfið (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Marcel Koller hefur verið staðfestur sem nýr þjálfari FC Basel í svissneska boltanum.
Heimir Hallgrímsson var orðaður við starfið og var talinn líklegur kandídat en á endanum hafði Koller vinninginn.

Koller er 57 ára gamall og hefur stýrt austurríska landsliðinu undanfarin sex ár. Hann var við stjórnvölinn þegar Ísland sló Austurríki út í riðlakeppni EM 2016.

Basel hefur verið í miklu basli undanfarið og endaði í öðru sæti á síðasta tímabili, fimmtán stigum frá toppliði Young Boys.

Koller var valinn framyfir Heimi vegna reynslu hans úr svissneska boltanum, en hann hefur unnið svissnesku deildina bæði með St. Gallen og Grasshoppers. Auk þess hefur hann stýrt Köln og Bochum í þýska boltanum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.