03.08.18 - 13:30
Elvar Geir Magnússon
Íslandsbaninn Musa til Sádi-Arabíu (Staðfest)

Musa á HM.

Mynd: Getty Images

Musa á HM.

Mynd: Getty Images
Nígeríski sóknarmaðurinn Ahmed Musa hefur yfirgefið Leicester og gengið í raðir Al-Nassr í Sádi-Arabíu.
Þessi 25 ára leikmaður var keyptur til Leicester fyrir metfé 2016 frá CSKA Moskvu.
Eftir aðeins tvö skoruð mörk í 21 leik var hann lánaður aftur til rússneska félagsins á síðasta tímabili.
Þessi 25 ára leikmaður var keyptur til Leicester fyrir metfé 2016 frá CSKA Moskvu.
Eftir aðeins tvö skoruð mörk í 21 leik var hann lánaður aftur til rússneska félagsins á síðasta tímabili.
Musa skoraði bæði mörk Nígeríu í sigrinum gegn Íslandi á HM í Rússlandi í sumar.
