Fotbolti.net
03.08.18 - 11:08
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

Ronaldo Vieira til Sampdoria (Staðfest)

Vieira er fimmti enski leikmaðurinn sem fer í ítalskt félag.

Vieira er fimmti enski leikmaðurinn sem fer í ítalskt félag.

Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Sampdoria hefur tilkynnt um kaup á Ronaldo. Það er þó ekki verið að tala um Portúgala heldur Ronaldo Vieira, tvítugan strák sem er fæddur í Gínea-Bissá en hefur leikið fyrir U21-landslið Englands.

Ronaldo Vieira kemur frá Leeds en miðað við skrif miðjumannsins á Twitter var það ekki hans val að skipta um lið.
„Stundum í lífinu fara hlutirnir ekki eins og þú vilt að þeir fari. Stundum ræður þú ekki ferðinni. En þá verður þú að taka við tækifærunum og gefa þig allan í þau eins og ég hef alltaf gert,\" skrifaði Ronaldo Vieira á Twitter.

„Ég elska Leeds United og á margar frábærar minningar. Ég hóf minn feril hjá Leeds svo ég vil þakka öllum þjálfurum og starfsliði sem hafa komið við sögu í minni þróun. Liðsfélagar mínir hafa verið mín önnur fjölskylda og ég óska þeim alls hins besta.\"

Sampdoria hafnaði í 10. sæti ítölsku A-deildarinnar á síðustu leiktíð.

BREAKING: #Sampdoria sign #Ronaldo! pic.twitter.com/vTZafVkMBF

— Sampdoria English (@sampdoria_en) August 3, 2018
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.