03.08.19 - 11:40
Brynjar Ingi Erluson
Adam Webster til Brighton (Staðfest)

Adam Webster er farinn frá Bristol City

Mynd: Getty Images

Adam Webster er farinn frá Bristol City

Mynd: Getty Images
Enska úrvalsdeildarfélagið Brighton er búið að kaupa Adam Webster frá Bristol City. Kaupverðið er 20 milljónir punda.
Webster, sem er 24 ára gamall, gekk til liðs við Bristol City fyrir síðasta tímabil en hann lék 47 leiki og skoraði 3 mörk fyrir félagið og vakti mikla athygli fyrir frammistöðu sína.
Brighton hefur verið í viðræðum við Bristol City í sumar en félagið fær 20 milljónir punda fyrir hann.
Mark Ashton, framkvæmdastjóri Bristol City, staðfesti söluna í morgun.
„Annað sinn í sumar sem félagið fær metfé fyrir leikmann. Þetta mun hjálpa okkur að ná góðum árangri á næsta tímabili," sagði Ashton.
Webster hefur einnig spilað fyrir Ipswich Town, Aldershot og Portsmouth á ferlinum.