Fotbolti.net
03.08.19 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Ítalska deildin

Aquilani tekinn við U18 liði Fiorentina (Staðfest)

Aquilani tekinn við U18 liði Fiorentina (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalski landsliðsmiðjumaðurinn fyrrverandi Alberto Aquilani lagði skóna á hilluna í sumar en hann ætlar ekki að hverfa frá knattspyrnuheiminum.
Í gær var það staðfest að Fiorentina væri búið að ráða hann sem þjálfara U18 liðsins. Aquilani hefur sterk tengsl við félagið eftir að hafa spilað þar í þrjú ár frá 2012 til 2015.

Aquilani er 35 ára og lék meðal annars fyrir Roma, Liverpool, Juventus og Milan á ferlinum. Hann lék 38 A-landsleiki fyrir Ítalíu en á sínum yngri árum þótti hann efnilegasti miðjumaður heims. Hann lék 69 leiki fyrir yngri landslið Ítalíu og var orðinn partur af sterku liði Roma aðeins 18 ára gamall.

Meiðslavandræði settu strik í reikninginn þegar hann var enn að þróa leik sinn og náði hann aldrei þeim hæðum sem búist var við á hans yngri árum. Væntingarnar til Aquilani voru gríðarlegar á Ítalíu þar sem hann átti að mynda fullkomna landsliðsmiðju ásamt mönnum á borð við Andrea Pirlo, Gennaro Gattuso og Daniele De Rossi.

Fiorentina virðist vera á mikilli uppleið eftir að Rocco Commisso keypti félagið. Hann sagðist ekki ætla að selja ungstirni liðsins, Federico Chiesa, þó það yrði boðið 100 milljónir evra. Þá leggur hann mikið upp úr því að fá kunnugleg andlit aftur til félagsins, sem er helsta ástæða þess að Aquilani er strax kominn með þjálfarastarf.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.