Fotbolti.net
03.08.19 - 09:30
Ívan Guðjón Baldursson

Cudicini og Makelele ráðnir til Chelsea (Staðfest)

Makelele í baráttu við Alexander Hleb.

Makelele í baráttu við Alexander Hleb.

Canon

Mynd: Getty Images

Carlo Cudicini og Claude Makelele, fyrrum leikmenn Chelsea, hafa verið ráðnir í þjálfarastörf hjá félaginu.
Frank Lampard, nýr stjóri Chelsea, hefur verið að ráða gamla liðsfélaga sínu í vinnu frá því að hann tók við taumunum og verður áhugavert að sjá hvort það mun skila árangri.

Cudicini er ráðinn sem tæknilegur þjálfari lánsmanna Chelsea á meðan Makelele er tæknilegur þjálfari í yngriflokkastarfinu.

Makelele mun starfa á Cobham æfingasvæðinu og starfa náið með leikmönnum í akademíu Chelsea.

Þeir munu fara saman í ferðir til að skoða og fylgjast með gengi þeirra leikmanna sem Chelsea lánar út. Það er gríðarlegt magn leikmanna á hverju tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.