03.08.19 - 22:50
Ívan Guðjón Baldursson
Juanfran til Sao Paulo (Staðfest)

Juanfran lék 355 keppnisleiki fyrir Atletico Madrid.

Mynd: Getty Images

Brasilíska félagið Sao Paulo er heldur betur búið að styrkja varnarlínuna sína í upphafi mánaðar en spænski bakvörðurinn Juanfran var að skrifa undir samning við félagið.
Juanfran skrifaði undir aðeins degi eftir Dani Alves sem gekk í raðir félagsins í gær.
Juanfran er 34 ára og kemur á frjálsri sölu eftir að samningur hans við Atletico Madrid rann út í sumar. Hann skrifar undir 18 mánaða samning.
Hann býr yfir gífurlegri reynslu eftir átta ára dvöl hjá Atletico en þar áður var hann leikmaður Osasuna og Espanyol eftir að hafa komið upp í gegnum uppeldisstarf Real Madrid.
Juanfran á 22 landsleiki að baki og var partur af hópnum sem vann EM 2012. Hann hefur unnið spænska bikarinn tvisvar, spænsku deildina einu sinni og Evrópudeildina tvisvar á ferlinum. Þá hefur hann fengið silfurverðlaun í Meistaradeildinni í tvígang en hann var valinn í lið ársins 2016.