03.08.19 - 20:52
Ívan Guðjón Baldursson
Sveinn Þór nýr þjálfari Magna (Staðfest)

Sveinn og Óli á hliðarlínunni hjá KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sveinn og Óli á hliðarlínunni hjá KA.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveinn Þór Steingrímsson hefur verið ráðinn sem nýr þjálfari Magna á Grenivík og skrifar hann undir þriggja ára samning.
Sveinn Þór stýrði Dalvík/Reyni til sigurs í 3. deildinni í fyrra og var í kjölfarið ráðinn sem aðstoðarþjálfari Óla Stefáns Flóventssonar hjá KA.
Sveinn Þór er menntaður íþróttafræðingur og er einnig að taka UEFA A gráðuna í þjálfun.
„Sveinn Þór er afar efnilegur þjálfari og erum við fullir tilhlökkunar að starfa með honum. Við bjóðum Svein Þór innilega velkominn á Víkina og óskum honum góðs gengis á komandi árum hjá Magna," segir í yfirlýsingu frá Magna.
Sveinn á einn keppnisleik að baki fyrir Magna, sem kom sumarið 2016. Hann lék 15 leiki í efstu deild karla með Grindavík og á einnig leiki að baki fyrir Njarðvík, Hamar, GG, Þrótt V. og Dalvík/Reyni.
Magni er sem stendur í botnsæti Inkasso-deildarinnar og búinn að tapa þremur leikjum í röð. Liðið er þó aðeins fjórum stigum frá öruggu sæti í deild, þrátt fyrir að vera með langverstu markatöluna, -25.