Enska úrvalsdeildarfélagið Manchester City mun tilkynna kaup á spænska vængmanninum Ferran Torres á morgun en enskir miðlar greina frá þessu í dag.
Man City hefur komist að samkomulagi við Valencia um kaup á Torres en félagið greiðir 37 milljónir punda fyrir leikmanninn.
Torres, sem er 20 ára gamall, skoraði 6 mörk og lagði upp önnur 8 í 44 leikjum í öllum keppnum á síðustu leiktíð.
Hann mun skrifa undir fimm ára samning hjá City en hann verður kynntur á morgun.
Pep Guardiola, knattspyrnustjóri City, vill breikka hópinn en félagið seldi Leroy Sane til Bayern München á dögunum.
Torres spilar iðulega hægra megin á vellinum en getur einnig spilað á vinstri vængnum.
Athugasemdir