Fotbolti.net
03.09.16 - 16:08
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

2. deild: ÍR í Inkasso (Staðfest) - Grótta og Afturelding berjast

ÍR mun leika í Inkasso-deildinni að ári

ÍR mun leika í Inkasso-deildinni að ári

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson

Nú er öllum leikjum dagsins lokið í 2. deild karla. ÍR-ingar eru búnir að vinna deildina, en þetta varð ljóst eftir að Grótta og Afturelding misstigu sig bæði í sínum leikjum. Grótta og Afturelding eru í mikilli baráttu í 2. og 3. sæti deildarinnar.

Grótta fékk botnlið KF í heimsókn og fyrir fram bjuggust flestir við þægilegum sigri Gróttu. Heimamenn komust yfir þegar Brynjar Kristmundsson skoraði á 58. mínútu, en 20 mínútum síðar jafnaði Isaac Ruben Rodriguez Ojeda fyrir KF. Á milli markanna fékk einn leikmaður úr hvoru liði að líta rauða spjaldið og liðin enduðu því bæði með tíu menn inn á vellinum. Lokatölur urðu 1-1 á Seltjarnarnesi.

Það var svo ekkert mark skorað þegar Afturelding og Njarðvík mættust og því eru Grótta og Afturelding áfram með jafnmörg stig í baráttunni um 2. sætið. Af sökum þessa úrslita eru ÍR-ingar búnir að vinna sigur í deildinni og þeir geta því fagnað vel í kvöld.

Að lokum ber svo að nefna það að Ægir hafði betur gegn KV og Alexander Már Þorláksson tryggði Hetti útisigur gegn Magna. Ægir og KV eru í mikilli fallbaráttu.
Ægir 1 - 0 KV

Grótta 1 - 1 KF
1-0 Brynjar Kristmundsson (\'58 )
1-1 Isaac Ruben Rodriguez Ojeda (\'79 )
Rautt spjald: Bessi Jóhannsson, Grótta (\'59 ), Halldór Logi Hilmarsson, KF (\'61 )

Magni 0 - 1 Höttur
0-1 Alexander Már Þorláksson (\'90 )

Afturelding 0 - 0 Njarðvík
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.