Fotbolti.net
03.09.16 - 15:51
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Inkasso-deildin: Grindavík upp í Pepsi-deildina (Staðfest)

Til hamingju Grindavík!

Til hamingju Grindavík!

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tveimur leikjum var að ljúka í Inkasso-deildinni víðfrægu. Það er orðið ljóst að Grindavík mun spila í Pepsi-deild karla á næsta tímabili og það er spurning hvort KA-menn tryggi sig upp á eftir þegar þeir mæta Selfossi.

Grindavík fékk Fjarðabyggð í heimsókn í dag og þar var aðeins eitt mark skorað. Það gerði Andri Rúnar Bjarnason eftir klukkutíma leik. Alexander Veigar Þórarinsson sendi fyrirgjöf beint á kollinn á Andra sem skallaði boltann í netið og það reyndist nóg. Alexander Veigar fékk reyndar tækifæri til þess að gulltryggja sigurinn, en hann lét verja frá sér af punktinum.

Þetta nægði Grindavík til þess að komast upp í Pepsi-deildina og þar munu þeir spila á næsta tímabili eftir stórkostlega frammistöðu í Inkasso-deildinni. Það eru þrjár umferðir eftir í Inkasso-deildinni.

Þótt þetta sé nánast búið á toppnum þá er botnbaráttan opin og sérstaklega eftir sigur Leiknis F. á Þórsurum í dag. Lokatölur í Fjarðabyggðarhöllinni urðu 3-2 og Leiknir er nú með 15 stig á botninum, þremur stigum frá öruggu sæti. Þór er í 4. sæti með 29 stig.
Leiknir F. 3 - 2 Þór
1-0 Guðmundur Arnar Hjálmarsson (\'27)
2-0 Almar Daði Jónsson (\'34)
2-1 Ármann Pétur Ævarsson (\'68)
3-1 Ignacio Poveda Gaona (\'87)
3-2 Ingi Freyr Hilmarsson (\'90)
Lestu nánar um leikinn

Grindavík 1 - 0 Fjarðabyggð
1-0 Andri Rúnar Bjarnason (\'61 )
1-0 Alexander Veigar Þórarinsson (\'69, misnotað víti )
Lestu nánar um leikinn

Leikur KA og Selfoss hefst klukkan 16:00
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.