03.09.16 - 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Victor Anichebe til Sunderland (Staðfest)

Anichebe er kominn til Sunderland

Mynd: Getty Images

Anichebe er kominn til Sunderland

Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Victor Anichebe er búinn að skrifa undir samning við Sunderland í ensku úrvalsdeildinni. Hann kemur til liðsins á frjálsri sölu eftir að hafa leikið síðast með West Brom.
David Moyes, stjóri Sunderland, þjálfaði Anichebe á sínum tíma hjá Everton og þeir þekkjast því vel. Þeir munu nú vinna aftur saman, nú hjá Sunderland.
David Moyes, stjóri Sunderland, þjálfaði Anichebe á sínum tíma hjá Everton og þeir þekkjast því vel. Þeir munu nú vinna aftur saman, nú hjá Sunderland.
Anichebe fékk ekki nýjan samning hjá West Brom og hann hefur þess vegna verið að leita sér að nýju félagi í sumar. Hinn 28 ára gamli Anichebe var í þrjú ár hjá West Brom og skoraði þar níu mörk í 63 leikjum.
Anichebe skrifaði undir samning við Sunderland út þessa leiktíð, en hann mun bæta breiddina sóknarlega. Fabio Borino verður frá vegna meiðsla næstu mánuðina og þá er Jermain Lens farinn til Fenerbache á láni. Það er því kærkomið fyrir Moyes og hans menn að fá Anichebe til þess að auka breiddina sóknarlega.

Heimild: Sky Sports