Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 03. september 2019 09:00
Magnús Már Einarsson
Bolasie til Sporting Lisabon (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Portúgalska félagið Sporting Lisabon hefur fengið kantmanninn Yannick Bolasie á láni frá Everton út tímabilið.

Hinn þrítugi Bolasie kom til Everton frá Crystal Palace á 25 milljónir punda árið 2016 en hefur átt erfitt uppdráttar síðan þá.

Bolasie meiddist illa á hné á sínu fyrsta tímabili og hefur samtals einungis náð 32 leikjum með liðinu.

Á síðasta tímabili fór hann til Aston Villa á láni fyrri hlutann og til Anderlecht eftir áramót.
Athugasemdir
banner