Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 03. september 2019 10:30
Magnús Már Einarsson
Kalinic til Roma - Schick til RB Leipzig (Staðfest)
Nikola Kalinic.
Nikola Kalinic.
Mynd: Getty Images
Roma breytti til í framlínu sinni í gær áður en félagaskiptaglugginn á Ítalíu lokaði.

Rómverjar fengu framherjann Nikola Kalinic á láni frá Atletico Madrid út tímabilið en sendu framherjann Patrik Schick á sama tíma til þýska félagsins RB Leipzig á láni.

Hinn 31 árs gamli Kalinic þekkir til í ítalska boltanum eftir að hafa áður leikið með Fiorentina og AC Milan.

Roma getur keypt króatíska landsliðsmanninn á níu milljónir evra að lánssamningi loknum næsta sumar.

Schick er 23 ára Tékki en RB Leipzig greiðir 3,5 milljónir evra fyrir lánið á honum með möguleika á kaupum fyrir 29 milljónir evra næsta sumar.
Athugasemdir
banner